Um rétt
Hugmyndafræðilegur grundvöllur Réttar er óbreyttur frá árdögum Ragnars Aðalsteinssonar í sjálfstæðri lögmennsku, þ.e. að lögmaðurinn gegni hlutverki bæði sem þjónn og verndari réttarins, ekki síst hvað varðar hagsmunagæslu fyrir almenning gagnvart sérhagsmunum, stórfyrirtækjum og ríkisvaldi. Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af málflutningi og hafa unnið að flóknum málum á fjölmörgum réttarsviðum. Þeir búa yfir sérhæfingu á sviði mannréttinda, höfundarréttar, stjórnskipunarréttar, eignarréttar, skaðabótaréttar, samkeppnisréttar, kröfu- og samningaréttar og réttarfars.
Meðal viðskiptavina Réttar eru einstaklingar, innlend og erlend fyrirtæki, auk sveitarfélaga.
Réttur er til húsa á 3. hæð að Klapparstíg 25-27 í Reykjavík.
Skrifstofan er opin frá kl. 9.00-16.00 alla virka daga, sími 511 1206, fax 511 1207 og tölvupóstfang stofunnar er .(JavaScript must be enabled to view this email address).
Réttur veitir faglega og vandaða ráðgjöf á flestum sviðum lögfræðinnar. Stofan aðstoðar bæði innlend og erlend fyrirtæki, einstaklinga, félög, félagasamtök, stofnanir og sveitarfélög.
Auk málflutnings og almennra lögfræðistarfa eru helstu áherslur stofunnar eftirtalin réttarsvið:
Eigna- og veðréttur
Fasteignakauparéttur
Félagaréttur
Gerðardómar
Hugverkaréttur
Mannréttindi
Réttargæsla brotaþola
Réttarfar
Samninga- og kröfuréttur
Skaðabóta- og vátryggingaréttur
Skipti dánarbúa, þrotabúa og umsjón nauðasamninga
Stjórnskipunarréttur
Stjórnsýsluréttur
Verjandastörf í opinberum málum – Refsiréttur