Nýr áfellisdómur yfir íslenska ríkinu
Mannréttindadómstóll Evrópu kvað hinn 13. janúar 2026 upp tvo dóma í málum fimm íslenskra kvenna gegn íslenska ríkinu vegna meðferðar á kærum þeirra vegna kynferðisofbeldis. Málin e…
Réttur veitir faglega og vandaða ráðgjöf til einstaklinga, innlendra og erlendra fyrirtækja, félagasamtaka og sveitarfélaga.
Lesa meira
Ragnar Aðalsteinsson, einn eigenda stofunnar, hefur unnið brautryðjandastarf í þágu mannréttinda á Íslandi og lengi verið einn áhrifamesti lögmaður landsins.
LESA MEIRA
Réttur byggir á hugsjón um réttlæti og mannvirðingu. Í áraröð hefur stofan verið metin fremst í flokki íslenskra lögmannsstofa á sviði málflutnings og ágreiningsmála af alþjóðlegum matsfyrirtækjum á við Chambers and Partners og Legal 500. Þá tekur Réttur þátt í alþjóðlegu samstarfi Sameinuðu þjóðanna um UN Global Compact, sem varðar m.a. samfélagslega ábyrgð, umhverfið og jafnréttismál.
LESA MEIRA


Rætur Réttar má rekja til ársins 1969 þegar Ragnar Aðalsteinsson stofnaði lögmannsstofu sína. Meðeigendur Ragnars í Rétti eru Sigurður Örn Hilmarsson, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, Védís Eva Guðmundsdóttir og Kári Hólmar Ragnarsson. Allt frá stofnun stofunnar hefur áhersla verið lögð á framgang réttarins með manngildishugsjón að leiðarljósi og veitir Réttur þannig fólki og félögum alhliða þjónustu í sókn og vörn réttinda sinna. Hugmyndafræðilegur grundvöllur Réttar er óbreyttur frá árdögum Ragnars Aðalsteinssonar í sjálfstæðri lögmennsku, þ.e. að lögmaðurinn gegni hlutverki bæði sem þjónn og verndari réttarins, ekki síst hvað varðar



hagsmunagæslu fyrir almenning gagnvart sérhagsmunum, stórfyrirtækjum og ríkisvaldi. Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af málflutningi og hafa unnið að flóknum málum á fjölmörgum réttarsviðum. Þeir búa yfir sérhæfingu á sviði mannréttinda, höfundaréttar, stjórnskipunarréttar, eignarréttar, skaðabótaréttar, samkeppnisréttar, kröfu- og samningaréttar og réttarfars. Réttur annast víðtæka hagsmunagæslu fyrir skjólstæðinga sína og veitir þeim ráðgjöf um lagalegan rétt sinn auk þess að sækja hann eða verja með samningaleiðinni þegar hún er fær en málflutningi fyrir dómstólum þegar á þarf að halda.



Eigendur stofunnar deila þeirri hugsjón að það séu grundvallarréttindi alls fólks að vera jafnt fyrir lögum og hafa aðgang að vandaðri þjónustu til þess að þekkja lögbundinn rétt sinn og standa á honum. Réttur veitir faglega og vandaða ráðgjöf á flestum sviðum lögfræðinnar. Stofan aðstoðar bæði innlend og erlend fyrirtæki, einstaklinga, félög, félagasamtök, stofnanir og sveitarfélög.

Mannréttindadómstóll Evrópu kvað hinn 13. janúar 2026 upp tvo dóma í málum fimm íslenskra kvenna gegn íslenska ríkinu vegna meðferðar á kærum þeirra vegna kynferðisofbeldis. Málin e…

Þann 26. ágúst síðastliðinn féllu tveir dómar hjá Mannréttindadómstóli Evrópu gegn íslenska ríkinu í málum vegna ofbeldis gegn konum. Málin er að rekja allt aftur til á…

Svala Davíðsdóttir, fulltrúi á Rétti, er meðal tveggja nýútskrifaðra lögfræðinga sem hljóta viðurkenningu fyrir bestu meistararitgerðina um Mannréttindasáttmála Evrópu og áhrif ha…

